Njóta Baugsmenn trausts?

Bankastjóri Kaupþings vill ekki tjá sig um það hvort eigendur Haga njóti trausts hjá bankanum. Í reglum bankans segir að mikilvægt sé að eigendur njóti trausts eigi þeir að koma áfram að rekstri.

Þá vill bankastjóri Kaupþings hvorki játa því né neita hvort afskrifa eigi milljarða króna af skuldum 1998 ehf sem er eigandi Haga. Fram kom í Morgunblaðinu í morgun að félagið skuldar Nýja Kaupþingi 48 milljarða króna sem varð til þegar félagið keypti Haga af Baugi á síðasta ári. Þau viðskipti eru nú til skoðunar hjá Samkeppnisyfirvöldum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert