Grunur um svínaflensu í svínabúi í Eyjafirði

Grunur hefur vaknað um inflúensu í svínum á svínabúi í Eyjafirði. Sýni verða tekin í dag og send til rannsóknar á Tilraunastöð HÍ að Keldum. Yfirdýralæknir segir í samtali við mbl.is að niðurstaðna sé að vænta eftir helgi.

Engin tengsl eru talin vera milli þessa grunaða tilfellis og fyrstu staðfestu greiningu á svínainflúensu í svínum á Minni-Vatnsleysu, að því er fram kemur á vef Matvælastofnunar. Um er að ræða svínabúið á Hraukbæ í Eyjafirði.

Tekið er fram að svínaflensa smitist ekki með svínakjöti og fólki stafi því engin hætta af neyslu þess. Til að hindra útbreiðslu smits til annarra búa hafi bann verið sett á flutning dýra frá búinu og sóttvarnir hertar.

Einkenni inflúensu í svínum eru m.a. hár hiti og lystarleysi, kvef og hósti. Svínin ná sér oftast eftir þriggja til sex daga veikindi.

Sú almenna regla gildir að óheimilt er að slátra veikum dýrum, þetta á jafnt við um svínaflensu sem aðra sjúkdóma. Ekki er ástæða til að banna slátrun einkennalausra svína þótt önnur svín á búinu séu veik. Svínaflensusmit berst ekki í fólk með neyslu svínakjöts.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert