Munu ekki una skattahækkunum sem lengja kreppuna
Samtök atvinnulífsins (SA) segjast aldrei munu aldrei una skattahækkunum, sem séu til þess fallnar að dýpka og lengja kreppuna. Þá geti samtökin heldur ekki unað því að gengið sé þvert á það sem búið er að semja um. Verði það niðurstaða ríkisstjórnarinnar skilji leiðir.
Þetta kemur fram í leiðara Vilhjálms Egilssonar, framkvæmdastjóra SA í nýju fréttabréfi samtakanna. Segir Vilhjálmur, að þegar stjórn SA ákvað framlengja kjarasamninga við Alþýðusambandið til nóvemberloka 2010 hafi staðið út af eitt mikilvægt atriði í viðræðum við ríkisstjórnina um framkvæmd stöðugleikasáttmálans. Þetta voru skattamálin, fyrst og fremst skattamál atvinnulífsins.
„Í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar er miðað við hátt í 90 milljarða króna skattahækkanir á þessu ári og því næsta miðað við fyrri hluta þessa árs. Við gerð stöðugleikasáttmálans var gert ráð fyrir 54 milljarða skattahækkunum á þremur árum, þ.e.a.s. 2009 - 2011. Samtök atvinnulífsins og Alþýðusambandið telja ekki vera forsendur fyrir þessum 90 milljarða skattahækkunum og gerðu athugasemdir við svokallaða aðlögunarþörf í ríkisfjármálum eins og hún birtist í fjárlagafrumvarpinu þótt aðstæður geti hugsanlega að einhverju leyti hafa breyst. Jafnframt var lögð áhersla á að minni skattahækkanir ættu fyrst og fremst að koma fram í minni hækkun tekjuskatts einstaklinga," segir Vilhjálmur.
Hann bætir við að SA hafi einnig mótmælt harðlega áformum um nýja orku-, kolefnis- og umhverfisskatta. Hins vegar hafi samtökin verið til viðræðu um skattahækkanir á atvinnulífið og ekki í sjálfu sér gert athugasemdir við það meginmarkmið að ná inn 16 milljörðum meira í ríkissjóð eins og fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir að hin nýju orku-, kolefnis- og umhverfisgjöld skili. Ekki hefur heldur verið gerð athugasemd við hækkun virðisaukaskatts um 8 milljarða króna.
„Nú er boltinn hjá ríkisstjórninni og vonandi næst niðurstaða sem atvinnulífið getur unað við. Meginmarkmið Samtaka atvinnulífsins er að binda enda á kreppuna og koma fjárfestingum og uppbyggingu nýrra starfa af stað. Um þetta hefur ríkisstjórnin sagst vera sammála SA og um þetta var samstaða í stöðugleikasáttmálanum," segir Vilhjálmur.
Bloggað um fréttina
-
Jón Snæbjörnsson Held hann sé allur eins og hann er séður -
Ómar Geirsson Þeir vilja að ICEsave hlekkirnir séu lagðir á þjóðina. -
Einhver Ágúst Hópur gjaldþrota braskara og svindlara... -
Jóhann Pétur Pétursson Einstök ríkisstjórn. -
Haraldur Haraldsson Munu ekki una skattahækkunum sem lengja kreppuna/um þetta geta launþegar ...
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 10. desember 2009, Innlent Verið að vísa SA frá stöðugleikasáttmálanum
- Miðvikudagur, 24. júní 2009, Innlent Einblíni meira á niðurskurð
- Fimmtudagur, 17. desember 2009, Innlent Gagnrýna ríkisstjórnina harðlega
- Þriðjudagur, 23. mars 2010, Innlent Segir að rætt hafi verið um skötuselinn
- Miðvikudagur, 4. nóvember 2009, Innlent Skattar fari ekki úr hófi
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































