Allir starfsmenn hafa tekið á sig hagræðingu
Allir starfsmenn Landspítalans hafa tekið þátt í hagræðingu í rekstri mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir
Með hagræðingaraðgerðum Landspítala hefur tekist að færa þjónustu frá dýrara formi til ódýrara forms. Þetta kemur fram í föstudagspistli Björns Zoëga forstjóra spítalans í dag. Í pistlinum kemur einnig fram að meðallaun allra stétta á spítalanum hafi lækkað, nema þeirra allralægst launuðu. Þannig hafi allir starfsmenn tekið á sig hluta af hagræðingu spítalans.
„Þessa vikuna höfum við verið að rýna nýjar tölur um rekstur spítalans fyrstu tíu mánuði ársins. Þar kemur margt forvitnilegt í ljós. Meðal annars sést að legudögum hefur fækkað aðeins, skurðaðgerðum hefur fækkað, komum á dag- og göngudeildir hefur fjölgað en fjöldi koma á bráðamóttökur stendur í stað milli ára.
Þrátt fyrir þetta hefur ekki myndast bið eftir þjónustu spítalans og eru nú biðlistar á LSH undantekning fremur en regla. Það að legudögum hefur fækkað og komum á dag- og göngudeildir hefur fjölgað sýnir að okkur hefur tekist að færa þjónustu frá dýrara formi (þjónusta allan sólarhringinn) til ódýrara forms. Þetta hefur líka leitt til minni yfirvinnu og þar með ákveðinnar launalækkunar.
Það hefur verið ákveðin tortryggni milli stétta á spítalanum vegna þessara launalækkana. Ég tel að sú tortryggni sé óþörf. Samkvæmt tölum spítalans hafa meðallaun allra stétta, nema þeirra allralægst launuðu, lækkað á þessu ári. Þannig hafa allir starfsmenn tekið á sig hluta af hagræðingu spítalans.
Sú hagræðing sem við teljum okkur hafa náð á þessu ári verður á bilinu 2.600-2.800 milljónir króna. Auðvitað eru þetta ekki allt laun en þau eru stór hluti af þessu. Þetta er frábær árangur og í raun er það einungis tvennt sem skyggir á þann árangur: Gengisþróun umfram forsendur fjárlaga (900 milljónir) og kostnaður vegna dráttarvaxta (220 milljónir). Við þurfum samt að gera enn betur á næsta ári. Meira um það eftir að fjárlög verða afgreidd," að því er segir í pistli Björns í dag.
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 12. febrúar 2010, Innlent 350 færri starfsmenn
- Föstudagur, 7. maí 2010, Innlent Launakostnaður undir áætlun
- Föstudagur, 4. desember 2009, Innlent Fundar með starfsfólki vegna sparnaðar
- Föstudagur, 20. ágúst 2010, Innlent Landspítalinn skilar afgangi
- Fimmtudagur, 18. nóvember 2010, Innlent Fækka um 70-100 starfsmenn
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































