Skýri hina hliðina

Ruth Sunderland viðskiptaritstjóri The Observer.
Ruth Sunderland viðskiptaritstjóri The Observer. James Powell

„Ég held ekki að venjulegt fólk í Bretlandi geri sér fulla grein fyrir hlutföllunum í deilunni og hvaða áhrif Icesave-skuldbindingarnar myndu hafa á venjulega Íslendinga.

Ég held að ef almenningur í Bretlandi gerði það myndi það leiða til aukinnar samúðar með Íslendingum,“ segir Ruth Sunderland, viðskiptaritstjóri The Observer, um afstöðu bresks almennings til Icesave-deilunnar.

Ruth tekur aðspurð undir að íslensk stjórnvöld hefðu átt að beita sér meira í að upplýsa Breta um skuldabyrðina sem Icesave mun leggja á íslensku þjóðina. Bretar vilji ekki kalla kreppu yfir Ísland.

„Ég held ekki að breskur almenningur vilji horfa upp á Íslendinga missa húsin sín og drukkna í skuldafeni.“

Sjá nánar samtal við frú Sunderland í Morgunblaðinu í dag.


Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert