Segir Íslendinga hafa logið
Seðlabanki Íslands laug að stjórnendum seðlabanka Hollands um stöðu Landsbankans fyrir bankahrunið hér á landi, að sögn Arnolds Schilders, sem var í stjórn hollenska bankans. Hollenskir ráðamenn hafa áður sakað Fjármálaeftirlitið á Íslandi um að hafa veitt rangar upplýsingar um stöðu íslenska bankakerfisins sumarið 2008.
„Íslenskir starfsbræður okkar lugu að okkur, ég get ekki orðað það öðruvísi,“ sagði Schilder þegar hann svaraði spurningum hollenskrar þingnefndar sem rannsakar málið. Schilder bar ábyrgð á bankaeftirliti hollenska seðlabankans á þessum tíma. „Við spurðum nokkrum sinnum hvernig gengi. Í hvert skipti sögðu þeir okkur ... að ekkert væri að.“
Hollensk rannsóknarnefnd fjallar nú um efnahagshrunið þar í landi undir
stjórn þingmannsins Jan de Wit. Hann sagði í síðustu viku, að
Fjármálaeftirlitið á
Íslandi hafi neitað að senda fulltrúa sinn fyrir nefndina.
Arnold Schilder er nú formaður alþjóðlegrar nefndar um endurskoðunarstaðla, IAASB. Hollenskir fjölmiðlar segja frá ummælum Schilders í dag og segja hann hafa sakað Seðlabankann á Íslandi um að hafa sagt ósatt.
Fram hefur komið, að hollenski seðlabankinn var í samskiptum við Fjármálaeftirlitið í ágúst 2008 vegna Landbankans. Wouter Bos, fjármálaráðherra Hollands, sagði á blaðamannafundi í október 2008, að hollenski seðlabankinn hefði fram á síðustu stundu fengið upplýsingar frá Íslandi um að allt væri í lagi með Icesave-reikningana. Hann hélt því einnig fram á sama fundi að seðlabankinn hefði fengið rangar upplýsingar um greiðsluþol íslensku bankanna frá Fjármálaeftirlitinu á Íslandi út septembermánuð.
Icesave-reikningar Landsbankans voru opnaðir sem útibú í Hollandi þann
29. maí 2008. Þegar þeim var lokað í október, rúmum fjórum mánuðum
síðar, voru viðskiptavinir þeirra orðnir 114.136 talsins. Innstæður á
reikningum þeirra voru 1.674 milljónir evra, nærri 300 milljarðar króna á núverandi gengi.
Bloggað um fréttina
-
Magnús Helgi Björgvinsson Svo erum við að tala um vonda útlendinga -
Hrannar Baldursson Af hverju neitar Fjármálaeftirlitið á Íslandi að senda fulltrúa fyrir ...
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 1. febrúar 2010, Innlent Talaði ekki um Seðlabankann
- Föstudagur, 5. febrúar 2010, Innlent Aldrei hitt Hollendingana
- Föstudagur, 5. febrúar 2010, Innlent Áttu ekki samskipti við Hollendinga vegna bankanna
- Föstudagur, 12. febrúar 2010, Innlent Rannsaka ásakanir um lygar
- Þriðjudagur, 2. febrúar 2010, Innlent Rannsakað hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar upplýsingar
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































