Árvakur hf. kaupir Monitor

Vefur Monitor.
Vefur Monitor.

Árvakur hf., útgefandi Morgunblaðsins og fréttavefjarins mbl.is, hefur fest kaup á tímaritinu Monitor. Til stendur að samnýta Monitor með Morgunblaðinu og mbl.is. Nú er unnið að nánari útfærslu á því að sögn Óskars Magnússonar útgefanda. 

Tímaritið Monitor hefur einkum höfðað til yngri lesenda. Það var lengi vel gefið út tíu sinnum á ári en hefur komið út ársfjórðungslega um skeið.

Vefur Monitor

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert