Launavísitala hækkar

Launavísitala í janúar hækkaði um 0,1% frá fyrri mánuði samkvæmt útreikningum Hagstofu en á sama tíma lækkaði vísitala neysluverðs um 0,3% milli mánaða. Hækkaði vísitala kaupmáttar um 0,4% frá desember en síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa lækkað um 3,2%.

Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 3,1%. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6,6% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 10,9%. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert