Fjöldi hvala við Grindavík

Sex fjölskyldur háhyrninga sáust um helgina.
Sex fjölskyldur háhyrninga sáust um helgina. Rolanc Buchholz

Farþegar hvalaskoðunarfyrirtækisins Eldingar duttu í lukkupottinn þegar fjöldi háhyrninga, hnúfubaka og langreyður sáust rétt fyrir utan Grindavík  í hvalaskoðunarferð um síðustu helgi. Veðrið hefur leikið við hvalaskoðunarfólk sunnanlands í vetur og sækja margir í ferðirnar.

Eva María Þórarinsdóttir, markaðsstjóri, Eldingar sagði að þau færu í hvalaskoðunarferðir um helgar, föstudag, laugardag og sunnudag. Vegna veðurs í Faxaflóa var báturinn færður um síðustu helgi og það lukkaðist svona vel. 

Afar sjaldgæft er að sjá þennan fjölda hvala á þessum tíma árs. Um síðustu helgi sáust sex fjölskyldur háhyrninga og um tíu hnúfubakar. Á sunnudaginn var sást líka langreyður og vakti það mikla hrifningu. Langreyður er næst stærsta skepna jarðar og hefur ekki sést til hennar á hvalaskoðunarslóðum Eldingar í nokkur ár. 
  
Elding hóf vetrarhvalaskoðun fyrst fyrir tveimur árum og hafa vinsældir hennar farið ört vaxandi og er nú orðin eftirsóknarverður afþreyingarkostur fyrir innlenda og erlenda ferðamenn á vetrarmánuðum. Veðrið í vetur hefur verið með eindæmum gott og gert það að verkum að Elding hefur varla misst úr ferð vegna veðurs.

Hnúfubakar lyftu sporðum og stungu sér í kaf.
Hnúfubakar lyftu sporðum og stungu sér í kaf. Harpa Hrönn Magnúsdóttir
Alls sáust tíu hnúfubakar um helgina.
Alls sáust tíu hnúfubakar um helgina. Harpa Hrönn Magnúsdóttir
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert