Í fangelsi fyrir að stela öldós

Stokkseyri.
Stokkseyri. www.mats.is

Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt konu á sextugsaldri í 3 mánaða fangelsi fyrir að stela dós af jólaöli og skinnarmbandi í galleríi á Stokkseyri. Konan hefur ítrekað verið dæmd fyrir þjófnað og fleiri brot og rauf með þessi skilyrði eldri dóms.

Þetta gerðist í desember á síðasta ári. Konan sagðist hafa greitt fyrir gosið áður en hún fór með dósina út úr húsinu en  armbandið hafa slæðst í poka með pilsi sem hún keypti. Þetta tók dómurinn ekki trúanlegt og fann konuna seka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert