Bandarískur sendiherra hingað

Bandaríska sendiráðið.
Bandaríska sendiráðið.

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, hefur skipað Luis E. Arreaga í embætti sendiherra í Reykjavík.  Arreaga hefur starfað lengi í bandarísku utanríkisþjónustunni og var síðast yfirmaður ráðningarskrifstofu bandaríska utanríkisráðuneytisins.

Enginn sendiherra hefur verið í bandaríska sendiráðinu í Reykjavík frá því Carol Van Voorst lét af því embætti við valdaskiptin í Washington í ársbyrjun  2009. Robert S. Connan var skipaður í embættið síðastliðið vor en hætti síðan við að þiggja starfið.

Arreaga er doktor í hagfræði. Hann hefur m.a. starfað í sendiráðum Bandaríkjanna í Panama, Ottawa, Genf og Madrid.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert