Niðurskurðurinn 32 milljarðar króna

Stjórnarráð Íslands.
Stjórnarráð Íslands. Jim Smart

Alls verður skorið niður um 32 milljarða króna á næsta ári, samkvæmt fjárlagafrumvarpinu sem lagt verður fram á næstu dögum. Alls verður aflað nýrra tekna fyrir 11 milljarða króna. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.

Þetta er mun betri staða en gert var ráð fyrir í efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar. Þar var reiknað með að stoppa þyrfti í 50 milljarða gat, en betri staða ríkissjóðs gerir það að verkum að það gat verður 43 milljarðar króna.

Ráðuneytin hafa unnið að tillögum um niðurskurð og tekjuaukningu og skila tillögum til fjármálaráðuneytisins í dag. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er gert ráð fyrir 5 prósenta niðurskurði í velferðarmálum en 10 prósentum í öðrum málaflokkum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert