Fundu afsagaða haglabyssu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur gert  tvær húsleitir í Reykjavík og eina í Hafnarfirði og handtekið þrjá karla í tengslum við rannsóknina en öll málin tengjast.

Á þessum stöðum hefur lögreglan fundið um 400 grömm af amfetamíni, tugi kannabisplantna og lítilræði af hassi og marijúana. Afsöguð haglabyssa og skotfæri voru einnig tekin í vörslu lögreglu í þessum aðgerðum.

Þremenningarnir eru á þrítugs-, fertugs- og sextugsaldri. Þeir hafa allir áður komið við sögu hjá lögreglu, mismikið þó.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert