Sótti slasaða konu

Úr myndasafni. Frá æfingu Landhelgisgæslunnar.
Úr myndasafni. Frá æfingu Landhelgisgæslunnar. mbl.is/Landhelgisgæslan

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNA, sótti fyrir stundu slasaða konu sem datt á hestbaki við Leggjarbrjót á milli Þingvalla og Hvalfjarðar nú síðdegis. Ekki fengust upplýsingar um hvort konan væri alvarlega slösuð en hún var flutt á Landspítalann í Fossvogi.

Leggjarbrjótur er forn þjóðleið milli Botnsdals og Þingvalla en einnig milli Brynjudals og Þingvalla.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert