Fréttaskýring: Segja stjórnvöld eiga að standa með Íslandi

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra með Steven Vanackere stækka

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra með Steven Vanackere Reuters

Morgunblaðið Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is

„Ég tek bara undir með formanni Sjálfstæðisflokksins í þessu. Þetta eru upplýsingar sem þarf að skoða. Ég er sannfærð um það að þetta getur ekki annað en styrkt okkar málstað,“ segir Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins.

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur staðfest í svari til Morgunblaðsins að engin ríkisábyrgð sé á bankainnistæðum samkvæmt tilskipun sambandsins um innistæðutryggingar sem innleidd var hér á landi fyrir rúmum áratug. Hins vegar heldur framkvæmdastjórnin því fram að Íslendingar eigi að greiða innistæðueigendum í Hollandi og Bretlandi vegna þess að innleiðingin á umræddri tilskipun hafi ekki verið með viðunandi hætti hér á landi.

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins segir að af rangri innleiðingu tilskipunar geti skapast skaðabótaábyrgð, en dómsmál vegna þess yrði að höfða fyrir íslenskum dómstólum að sögn Stefáns Más Stefánssonar, lagaprófessors við Háskóla Íslands, eins og fjallað hefur verið um í Morgunblaðinu.

Standi með Íslendingum

Ragnheiður segir að það hafi alltaf legið fyrir að Héraðsdómur Reykjavíkur væri varnarþing bæði Landsbanka Íslands og ríkisins. En það hafi hins vegar ekki verið vilji viðsemjenda Íslendinga að fara með þetta mál fyrir dómstóla.

„En það sem mér finnst vera lykilatriði í þessu er að íslensk stjórnvöld verji málstað okkar Íslendinga. Það er sama hvað kemur upp á þá er eins og ráðamenn séu að tala máli okkar viðsemjenda. Þannig hefur þetta verið meira og minna til þessa. Þegar komið hafa fram einhverjar góðar fréttir sem hafa getað styrkt stöðu okkar í málinu hafa viðbrögðin verið þau að gera sem allra minnst úr því. Ef semja á um þetta mál verður að gera það með sanngjörnum hætti þannig að allir geti sæmilega við unað.“

 Reynt að finna rök

„Þetta hljómar nú bara eins og einhverjir séu bara að leita dauðaleit að einhverjum rökum til þess að réttlæta það að við Íslendingar eigum að greiða þessa svokölluðu Icesave-skuld,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins. Hann segir að það hafi þannig ekkert breyst að því leyti að það hafi eins og áður engin rök komið fram sem sýna fram á það að íslenska ríkið beri ábyrgð í þessum efnum heldur þvert á móti.

Gunnar Bragi segir að ef einhverjir vilji höfða skaðabótamál gegn íslenska ríkinu vegna þessa máls, Hollendingar, Bretar eða einhverjir aðrir, þá verði þeir einfaldlega bara að gera það. „Það er síðan alveg ótrúlegt hvernig stjórnvöld hafa haldið á þessu máli. Í stað þess að stökkva á öll rök sem geta orðið okkar málstað til framdráttar þá er haldið akkúrat öfugt á málum.“

ESA hefði átt að gera viðvart

„Hafi þessi tilskipun ekki verið innleidd með tilskildum hætti þá hefði Eftirlitsstofnun EFTA væntanlega komið auga á það. Það er hennar verkefni að benda stjórnvöldum á það hvort verið sé að framfylgja EES-samningnum,“ segir Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, um svar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins þar sem staðfest er að tilskipun sambandsins um innistæðutryggingar kveði ekki á um ríkisábyrgð á bankainnistæðum.

Hins vegar segir framkvæmdastjórnin að tilskipunin hafi ekki verið rétt innleidd hér á landi fyrir rúmum áratug og því eigi Íslendingar að greiða Hollendingum og Bretum vegna Icesave-reikninga Landsbankans.

Þórunn segir að ef skoðun framkvæmdastjórnarinnar, eins og hún kemur fram í svari hennar, sé rétt þá hafi Eftirlitsstofnunin átt að gera íslenskum stjórnvöldum viðvart fyrir löngu.

„Eftirlitsstofnunin hefur mjög góða yfirsýn yfir innleiðingu gerða á Íslandi, fylgist vel með og sinnir sínu eftirlitshlutverki vel. Þess vegna verð ég að taka því með hæfilegum fyrirvara hversu ígrundað þetta svar er. Ég sé ekki að hægt sé að styðja þá fullyrðingu rökum að ekki hafi verið staðið rétt að þessu hér .“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Grétu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næst mest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á manninn þar sem hann hékk á klettanös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvísjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigur þess mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19 landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvísjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú höfuðborg Aserbaídsjan og var þeim Jónsa og Grétu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
HONDA CR-V STW 4WD
Honda cr-w 1998. Ekinn 222 þús.sjálfskiptur. Dráttarkúla.Topplúga. Nýr geymir. N...
Nýleg springdýna 153 cm. á breidd.
FÆST Á AÐEINS 10.000. UPPL. Í SÍMA. 8562418 Í DAG OG NÆSTU DAGA. ...
BLACKLION SUMARDEKK
Blacklion sumardekk - pakkatilboð 195/65 R 15 kr. 52.900. 205/55 R 16 kr. 63...
Kisi er týndur
Hann er hvítur og grábröndóttur og týndist í Fossvoginum. Hann er eyrnamerktur o...
 
Tækniskólinn - atvinnuauglýsing
Önnur störf
Framúrskarandi kennarar óskast í ...
Samkoma
Félagsstarf
Safnaðarheimilið Grens...
Bl atvinnuaugl
Önnur störf
HYUNDAI FLYTUR Í NÝJA OG GLÆSILEGA FRAMT...
Samkoma
Félagsstarf
Sunnudagur27. maí - hv...