„Það er skítalykt af þessu frá a til ö“

Skólpvatn var losað á vatnsverndarsvæði í Kárastaðalandi á Þingvöllum.
Skólpvatn var losað á vatnsverndarsvæði í Kárastaðalandi á Þingvöllum.

Félag sumarbúastaðaeigenda á Þingvöllum hefur kært Holræsa- og stífluþjónustu Suðurlands til lögreglu. Ástæðan er sú að síðastliðinn föstudag voru starfsmenn fyrirtækisins staðnir að verki við að losa skólpvökva út í umhverfið, nánar tiltekið mosaþakinn kjarrmóa sem liggur inni á vatnsverndarsvæði Þingvallavatns.

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands hefur veitt eiganda Holræsa- og stífluþjónustunnar áminningu vegna athæfisins. Verði fyrirtækið aftur staðið að slíku missir það starfsleyfið. Óttast er að neysluvatn sumarbústaða á svæðinu hafi mengast en nú er beðið eftir niðurstöðum mælinga Heilbrigðiseftirlits Suðurlands.

Ekki nóg gert í málinu

Sumarbústaðaeigandi í Kárastaðalandi á Þingvöllum sem Morgunblaðið hafði samband við segir viðbrögð yfirvalda í málinu í engu samræmi við alvarleika þess og sakar heilbrigðiseftirlitið um óvandaða stjórnsýsluhætti. „Það er skítalykt af þessu frá a til ö.“

Fylgjast með neysluvatni

„Við fylgjumst með vatnsbólum á staðnum og tökum bæði sýni þaðan og úr neysluvatni í bústöðunum í kring,“ segir Birgir Þórðarson, heilbrigðisfulltrúi á umhverfis- og mengunarsviði Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Hann segir fólk á svæðinu þurfa að sjóða neysluvatn þar til niðurstöður hafi komið fram. Birgir segir málið litið mjög alvarlegum augum en hann telur að um mistök hafi verið að ræða. Viðkomandi aðilar hafi ekki áttað sig á að þeir væru innan vantsverndarsvæðis. Hann segir að umræddu stíflufyrirtæki hafi verið gert að hreinsa upp eftir sig auk þess sem eigandanum hafi verið veitt ámining. Málinu sé að öðru leyti lokið af hálfu heilbrigðiseftirlitsins.

Sævar Harðarson, verkefnastjóri hjá Holræsa- og stífluþjónustu Suðurlands, segir að um mannleg mistök hafi verið að ræða og fyrirtækið muni gera það sem því ber til að bæta fyrir þau mistök.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert