Finnst koma til greina að biskup stígi til hliðar

Séra Baldri Kristjánssyni, fyrrverandi biskupsritara, finnst alveg koma til greina að Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, stígi til hliðar á meðan sannleiksnefndin sem kirkjan ætlar að setja upp er mótuð og  starfar en tekur fram að honum finnist það svo sem ekkert sjálfgefið. Þetta kemur fram á bloggvef Baldurs á Eyjunni.

„Fræðin kenna okkur að til þess hugsaðir staðgenglar gera lítið annað en það sem aðal hefði gert.  Sannleiksnefndin mun, að mínum skilningi, fyrst og síðast rannsaka hvernig  og hvort reynt var að þagga málið um kynferðisbrot Ólafs Skúlasonar niður, fyrst áður en Ólafur varð biskup, síðan árið 1996 þegar ásakanir Sigrúnar Pálínu Ingvarsdóttur, Dagbjörtu Guðmundsdóttur og Stefaníu Þorgrímsdóttur komu opinberlega fram. 

Þá mun nefndin  væntanlega rekja þá sögu hvers vegna ekkert var gert til þess að rétta mannorð kvennanna í framhaldi af biskupsskiptum og svo enn aftur hvernig stóð á biðinni og leyndinni eftir að Guðrún Ebba biskupsdóttir sendi bréf sitt.  Auðvitað væri kirkjan trúverðugri ef Karl stigi til hliðar og einhver utanaðkomandi valdakerfinu yrði  sett eða settur ,,biskopus temporaris“.  Á móti kæmi að það myndi auka á ringulreiðina og Karli biskupi er margt vel gefið og gæti enn haldið vel á málum," skrifar Baldur og bætir við að það sé annað mál en enginn biskup ætti að sitja lengur en í 8-10 ár.

Sjá nánar hér

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert