Siglt eftir sjávarstöðu

Herjólfur strauk botninn í mynni Landeyjahafnar í gærkvöldi.
Herjólfur strauk botninn í mynni Landeyjahafnar í gærkvöldi. Rax / Ragnar Axelsson

Síðdegis í dag er von á nýrri siglingaáætlun Herjólfs sem byggð verður á flóðatöflunni. Vegagerðin reiknar með að siglt verði eftir þeirri áætlun næstu daga þar til dýpkunarskip hefur dýpkað innsiglingu Landeyjahafnar. Búist er við að hægt verði að hefja dýpkun nú síðar í vikunni.

Siglingastofnun er nú að taka saman upplýsingar um sjávarstöðu við Landeyjahöfn næstu daga. Kristín H. Sigurbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs Vegagerðarinnar, sagði að starfsmenn Siglingastofnunar muni merkja við ákveðna „glugga“ miðað við sjávarstöðu og annað.

Skipið getur mögulega farið allt að tvær ferðir í slíkum „glugga“. Eimskip mun síðan fara yfir töfluna í samráði við skipstjóra Herjólfs. Í framhaldi af því verður gefin út tímabundin siglingaáætlun sem mun gilda fram undir næstu helgi.

Herjólfur mun því sigla á öðrum tímum en samkvæmt núgildandi áætlun þessa daga, svo fremi sem veður hamlar ekki för. Sem kunnugt er féllu niður þrjár ferðir ferjunnar á laugardaginn var vegna óveðurs. Breytingar á sjávarbotni réðu engu þar um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert