Verðhækkun á fóðri væntanleg

Skepnufóður mun hækka í verði í vikunni.
Skepnufóður mun hækka í verði í vikunni. mbl.is/Jim Smart

Von er á talsverðri hækkun nú í vikunni á verði nokkurra fóðurtegunda sem framleiddar eru í Fóðurblöndunni. Skýringin er að sögn Fóðurblöndunnar mikil verðhækkun á helstu hráefnum til fóðurgerðar. 

Hækkunin verður á bilinu 6-11% á svína og hænsnafóðri en um 4-10% á kúafóðri, en það er misjafnt eftir tegundum að sögn Fóðurblöndunnar.

Hækkunin tekur  gildi föstudaginn  17. september næstkomandi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert