Grunur um landasölu

Löggumyndir
Löggumyndir

Kona á miðjum aldri var handtekin í miðborginni um helgina. Grunur leikur á að hún hafi verið að selja landa en í bakpoka hennar fundust allnokkrir brúsar sem innihéldu heimagert áfengi. Umrædd kona var einnig handtekin í miðborginni í sumar en þá var hún við sömu iðju, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert