Suðurnesjamenn mótmæla í Reykjavík

Suðurnesjamenn eru hvattir til að mæta á Austurvöll.
Suðurnesjamenn eru hvattir til að mæta á Austurvöll. Helgi Bjarnason

Víkurfréttir greina frá því að starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja hefur boðað til fjöldamótmæla á Austurvelli fimmtudaginn 21. október kl. 17:00. Settar hafa verið upp tilkynningar á opinberum stöðum þar sem segir:

„Allir Suðurnesjamenn! Fjöldamótmæli á Austurvelli fimmtudaginn 21.okt kl.17. Jæja, nú þurfum við að láta í okkur heyra og berjast fyrir okkar málstað. Sýnum samstöðu og mætum öll á Austurvöll. Mætum með kröfuspjöld, en höfum þau málefnaleg“.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert