Túnin slegin í október

Frá Botni í Súgandafirði.
Frá Botni í Súgandafirði. www.mats.is

Tíðin hefur verið óvenju góð í haust og ekki á hverju ári sem sjá má vestfirska bændur slá tún sín í októbermánuði, en Björn Birkisson, bóndi í Botni í Súgandafirði, stóð í heyskap nú fyrir stuttu.

„Þetta er vissulega óvanlegt enda sérstakar aðstæður. Venjulega vill maður forðast að slá tún svona seint því það er meiri hætta að túnin verði fyrir skemmdum af vélunum þegar liðið er á haustið. Hér var um að ræða tún sem var komið í óhirðu svo við slógum það og hreinsuðum fyrir næsta sumar og slógum þannig tvær flugur í einu höggi,“ segir Björn.

Hann segir að heyskapur hafi verið góður í sumar „Fyrri sláttur var mjög rýr vegna þurrka en á móti kom að seinni sláttur var óvenju góður. Reyndar hefðum við viljað ná meiru inn í hús, þetta stendur frekar tæpt hjá okkur en ætti hafast,“ segir Björn og bætir við að þrátt fyrir góða tíð hafi þeir ekki ráðist í þriðja sláttinn.

„Veðrið og sprettan í lok september og byrjun október var reyndar svo góð og það hefði verið hægt að slá, en það er nóg að gera hjá bændum á þessum tíma hvað varðar smölun og fleira þannig það gafst hreinlega ekki tími til þess,“ segir Björn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert