Hálka á höfuðborgarsvæðinu

Lögreglan varar við hálku á Höfuðborgarsvæðinu.
Lögreglan varar við hálku á Höfuðborgarsvæðinu.

Lögreglan varar við mikilli hálku á höfuðborgarsvæðinu, sérstaklega í efri byggðum. Nokkuð hefur verið um óhöpp það sem af er morgni og í að minnsta kosti einu af þessum óhöppum var um slys á fólki að ræða

Ökumenn eru minntir á að skylt er að hafa bifreiðar útbúnar til vetraraksturs við aðstæður sem þessar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert