Betra útlit fyrir Landeyjahöfn

Herjólfur í Landeyjahöfn.
Herjólfur í Landeyjahöfn. Rax / Ragnar Axelsson

Vel lítur út með siglingar Herjólfs til Landeyjahafnar á morgun, að sögn Guðmundar Pedersen rekstrarstjóra Eimskips í Vestmannaeyjum. Skipið sigldi til Þorlákshafnar í dag vegna óvissu um það hvort Landeyjahöfn yrði fær.

Síðasta ferð Herjólfs var felld niður í gær og allar ferðirnar til Landeyjahafnar í dag. Ástæðan var sögð veður og ölduhæð.

Lóðsinn í Vestmannaeyjum fór til Landeyjahafnar í dag, án vandkvæða.

Guðmundur segir að í suðaustanáttum brotni aldan illa við hafnarkjaftinn. Því hafi ferðinni verði aflýst í gær og fyrstu ferðunum í dag. 

Fyrirhugað var að sigla til Landeyjahafnar síðdegis í dag en Guðmundur segir að staðan hafi verið metin þannig að tæpt væri að höfnin yrði fær. Þess vegna hefði verið gripið til þess ráðs að sigla til Þorlákshafnar, til þess að þeir sem treystu á skipið kæmust örugglega á milli í dag.

Hann er bjartsýnn um að siglt verði til Landeyjahafnar strax í fyrramálið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert