Margir í friðargöngu

Fjöldi fólks tók þátt í blysför niður Laugaveginn, en að henni standa íslenskir friðarsinnar. Þetta er 31. sinn sem gengið er til friðar á Þorláksmessu.

Margir líta nú á friðargönguna sem ómissandi þátt í jólaundirbúningi fjölskyldunnar og tekur fjöldi fólks sér hlé frá tiltektum og innkaupum rétt fyrir jólin til að leggja þar sitt af mörkum og styðja kröfuna um frið í heiminum. Undanfarin ár hafa slíkar göngur einnig verið bæði á Akureyri og á Ísafirði.


Áður en gangan hófst seldu friðarhreyfingarnar, sem að göngunni standa, kyndla á Hlemmi. Í lok göngunnar var stuttur fundur á Ingólfstorgi þar sem Steingerður Hreinsdóttir, alþjóða þróunarfræðingur ráðgjafi og verkefnastjóri hjá Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands og formaður stjórnar Háskólafélags Suðurlands flutti ávarp en fundarstjóri var Árni Pétur Guðjónsson leikari. Söngfólk úr Hamrahlíðarkórnum og Kór Menntaskólans við Hamrahlíð söng í göngunni og við lok fundar undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur.


Samstarfshópurinn minnir á að málstaður og rök friðarsinna skipta jafn miklu máli nú og fyrir þrjátíu árum. Stöðugt berast fregnir af ofbeldisverkum þjóða á milli og innan samfélaga. Óheyrilegum fjárhæðum er enn sóað í vígvæðingu og ekkert lát virðist á stríðunum í Írak og Afganistan.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert