Tekur til varna fyrir Ásmund Einar

Ögmundur Jónasson, dómsmála- og samgönguráðherra.
Ögmundur Jónasson, dómsmála- og samgönguráðherra. Mbl.is/Ómar

„En hvað veldur því að tilteknir fjölmiðlar sameinast um að rægja þennan ágæta mann? Hver skrifar svona rugl? Hver heldur um níðpennana á framangreindum fjölmiðlum?“

Þetta segir Ögmundur Jónasson dómsmálaráðherra á heimasíðu sinni, Ögmundur.is. Þar tekur hann til varna fyrir Ásmund Einar Daðason, þingmann Vinstri-grænna, sem stendur í ströngu við að andæfa fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar ásamt þeim Lilju Mósesdóttur og Atla Gíslasyni.

Og Ögmundur vitnar í fjölmiðlaumfjöllun: „Ásmundur Einar Daðason, þingmaður VG og bóndi, er ekki vinsæll í eigin flokki fremur en hinir af þremenningunum sem sátu hjá við afgreiðslu fjárlaga. Fullyrt er að Ásmundur sé lélegur...Fullyrt er að Ásmundur... fullyrt er að..."

Það er talsvert mikið fullyrt um Ásmund Einar Daðason í nýjasta sandkorni DV. Sama tuggan nema kannski rætnari en við höfum fengið að heyra í nokkrum fjölmiðlum landsins í aðdraganda jóla, Fréttablaðinu, vísi.is, Stöð 2 og nú síðast DV.

Allir þessir fjölmiðlar hafa hamast á hinum unga galvaska þingmanni Dalamanna Ásmundi Einari Daðasyni. Hann leyfði sér að vera á móti því að sækja um aðild að ESB. Og hann vill ekki láta segja upp starfsfólki á heilbrigðisstofnunum, krafðist úttektar á afleiðingum fjárlagafrmvarps, fékk ekki og sat því hjá."

Ögmundur spáir Ásmundi Einari bjartri framtíð í íslenskum stjórnmálum, vegna þess að hann sé fylginn sér, heiðarlegur, skeleggur og drengur góður. Ögmundur segir yfirleitt vera sammála honum. ,,Við erum á einu máli um grundvallarhugsjónir og stefnumið, ekki alltaf á einu máli um hvernig við eigum að ná þeim fram. Þetta er gangur lífsins. Og á aldrei að verða tilefni illinda - hvað þá vinslita.

Ásmundur Einar er ekki bara í uppáhaldi hjá mér. Hann er vinsæll í þjóðfélaginu og einnig í eigin flokki þvert á það sem sandkornsritari DV staðhæfir í tilvitnuninni sem vísað er í  hér að framan," segir Ögmundur, og stingur í lokin upp á því að handhafi blaðamannaverðlauna BÍ geti fundið út úr því hver sé spunameistarinn sem beitir sér gegn Ásmundi Einari.

Vísar hann þar í Jóhann Hauksson, blaðamann á DV. „Nú er að sýna verðlaunataktana," segir Ögmundur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert