„Óverulegar skattahækkanir“

„Myndin sem dregin er upp af skattahækkununum eru stórlega ýkt“, segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra. Hann segir þær óverulegar og að ekki megi rugla saman skattahækkunum og hækkunum sem fylgja verðlagi.

Steingrímur segist ekki óttast að hækkanirnar verði til þess að heimilin dragi úr neyslu með tilheyrandi áhrifum á efnahagslífið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert