Þjóðin ráði lyktum ESB-máls
Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri grænna og formaður utanríkismálanefndar þingsins, sagði á Alþingi í dag að hann væri enn þeirrar skoðunar, að ljúka eigi viðræðuferlinu við Evrópusambandið, niðurstaðan verði borin undir þjóðina og hún ráði lyktum þess. Árni sagði að vissulega væru skiptar skoðanir um þetta innan VG.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks, sagði að haft hefði verið eftir Árna Þór í fjölmiðlum í síðustu viku, að sú staða kynni að koma upp í viðræðunum við Evrópusambandið, að viðræðunum yrði slitið vegna krafna ESB um aðlögun Íslands að sambandinu eða lagabreytingar.
Bjarni sagði, að lagt hefði verið upp með það af hálfu þingmanna Vinstri grænna, þegar þingsályktunartillaga kom fram um aðildarviðræður sumarið 2009, að samningaviðræðurnar yrðu leiddar til lykta en þeir áskildu sér rétt til að leggjast gegn samningsniðurstöðunni.
Bjarni sagðist hafa mótmælt þessari nálgun því ekki væri hægt að ætlast til að utanríkisráðherra skrifaði undir aðildarsamninga við ESB án þess að fyrir lægi meirihlutastuðningur á Alþingi.
„Ég tel, að einstakir ráðherrar geti ekki stutt lok viðræðna um einstaka kafla í aðildarferlinu án þess að þeir séu sammála því sem þar er lagt fram. Þess vegna skil ég þá afstöðu formanns utanríkismálanefndar, að það aðstæður kynnu að skapast að það þyrfti að slíta viðræðum," sagði Bjarni og spurði Árna Þór hvort Vinstri grænir ætluðu þá ekki að styðja aðildarsamninginn, ef viðræðunum lyki.
Árni Þór sagði, að aðildarviðræðurnar byggðust á samþykkt Alþingis og því hefði verið lýst mjög nákvæmlega í áliti utanríkismálanefndar hvernig þær viðræður myndu að fara fram.
„Ég er þeirrar skoðunar að viðræðurnar séu í öllum meginatriðum í samræmi við það sem lagt vara upp með í því nefndaráliti," sagði Árni Þór.
Þá sagði hann, að ekkert væri nýtt í því sem haft var eftir honum í Fréttablaðinu í síðustu viku um hugsanleg viðræðuslit. Nákvæmlega sömu sjónarmið hefðu komið upp í framsöguræðu hans 16. júlí, 2009 þegar hann mælti fyrir meirihlutaáliti utanríkismálanefndar og formaður VG hefði lýst sömu sjónarmiðum þegar hann gerði grein fyrir fyrirvörum flokksins við aðildarferlið.
Bjarni ítrekaði þá skoðun, að ekki sé hægt að leiða aðildarsamninga til lykta nema fyrir liggi að meirihluti Alþingis og meirihluti ríkisstjórnarinnar styðji þá.
Bloggað um fréttina
-
Helgi Rúnar Jónsson Gott að Árni er að vitkast.... -
Jóhann Elíasson HEITIR ÞETTA "VIÐRÆÐUFERLI" NÚNA???????????????? -
Páll Vilhjálmsson Alþingi samþykkti ekki aðlögun -
Jóhannes Ragnarsson Hvað er gert við skipstjóra sem ... ?
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 24. ágúst 2010, Innlent Verri kostur að hætta núna
- Miðvikudagur, 8. júní 2011, Innlent Heitar umræður um aðgerðir í Líbíu
- Miðvikudagur, 17. febrúar 2010, Innlent Eigum að leyfa endurskoðun á öllum sviðum
- Miðvikudagur, 16. júní 2010, Innlent Árni Þór að hugsa um ESB
- Þriðjudagur, 14. júní 2011, Innlent Óviðeigandi að leita að „fallbyssufóðri“ hér á landi
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































