Færri á nöglum í borginni

Nagladekkjum hefur stórfækkað í Reykjavík. Hlutfall negldra dekkja var 32% undir lok janúar 2011 en var 42% í janúar árið 2008.

Hlutfall negldra dekkja undir bifreiðum var mælt 26. janúar síðastliðinn og reyndust 32% ökutækja á negldum en 68% á ónegldum. Hlutfallið er það sama og mældist í 17. nóvember 2010. Hlutfall nagladekkja í janúar 2009 var 41% og 42% árið 2008, að því er segir í tilkynningu frá umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkur.

„Þetta eru ánægjulegar fréttir þar sem Reykvíkingar geta aukið loftgæði og bætt hljóðvistina í borginni með því að velja önnur dekk en nagladekk,“ er haft eftir Eygerði Margrétardóttur, framkvæmdastýru Staðardagskrár 21, í Reykjavík.

Reykjavíkurborg hefur undanfarin ári í beðið ökumenn að endurmeta dekkjakost bifreiða og hvatt þá til að velja fremur góð vetrardekk en nagladekk. Ókosturinn við nagladekk í borgum er að þau valda hávaða- og loftmengun og hækka verulega kostnað við viðhald gatna. Góð vetrarþjónusta er á götum borgarinnar og akstur eftir aðstæðum gera nagladekk óþörf í Reykjavík.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert