Óþarfur ótti um EES

Dómar EFTA-dómstólsins eru viðurkenningardómar á því hvort aðildarríki EES-samningsins hafi …
Dómar EFTA-dómstólsins eru viðurkenningardómar á því hvort aðildarríki EES-samningsins hafi uppfyllt skuldbindingar sínar eða ekki. mbl.is/Kristinn

Óraunhæft er að ætla eða halda því fram að staða Íslands innan EES-samningsins breytist þótt Íslendingar hafni Icesave-samningnum og málið fari fyrir dómstóla, að mati Stefáns Más Stefánssonar lagaprófessors.

„Í EES-samningnum eru uppsagnarákvæði en áður en til uppsagnar kemur þarf að fara í langt ferli þar sem reynt er að jafna ágreining aðila og þá ber að hafa í huga að það er framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sem fer með málefni EES-samningsins og hún þarf að samþykkja uppsögn hans. Það er því fræðilegur möguleiki á því að hægt sé að segja upp EES-samningnum en ekki raunhæfur,“ segir Stefán Már í samtali í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert