Kuzubov efstur eftir sex umferðir

Úkraínski stórmeistarinn Yuriy Kuzubov er efstur með 5,5 vinning eftir sex umferðir á MP Reykjavíkurskákmótinu sem fram fer í Ráðhúsi Reykjavíkur. Kuzubov sigraði Pólverjann Miton Kamil í dag.

Fjórir stórmeistarar hafa 5 vinninga, þeir Robert Hess frá Bandaríkjunum, Luke McShane og Simon Williams frá Englandi, og Grikkinn Stelios Halkias. 

Henrik Danielsen er efstur Íslendinga með 4,5 vinninga en Hannes Hlífar Stefánsson, Björn Þorfinnsson og Sigurður Daði Sigfússon eru næstir með 4 vinninga.  

Sjöunda umferð fer fram á morgun og hefst kl. 16:30, segir í tilkynningu frá Skáksambandi Íslands.   

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert