Byrjað að dreifa Icesave-bæklingi

Íslandspóstur hóf í morgun að bera út kynningarbækling Lagastofnunar Háskóla Íslands vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave-samningana laugardaginn 9. apríl.

Gert er ráð fyrir að bæklingurinn berist inn á meira en helming heimila landsins í dag og að verkinu ljúki á morgun, þriðjudag.

Lagastofnun segir, að hafi bæklingurinn  ekki borist á miðvikudaginn kemur, 6. megi  hafa samband við þjónustufulltrúa Íslandspósts með netsamtali, tölvupósti á postur@postur.is eða símtali við þjónustuver í síma 580 1200.

Bæklingurinn er einnig aðgengilegur í pdf-formi á kynningarvefnum thjodaratkvaedi.is sem hefur  verið opinn í eina viku. Þar eru helstu álitaefni í þjóðaratkvæðagreiðslunni kynnt á hlutlausan hátt á íslensku, táknmáli og ensku og vísað á fjölda gagna með frekari upplýsingum um málið.

Jafnframt eru á vefnum tenglar á ýmsar vefsíður með mismunandi skoðanir varðandi einstök efnisatriði eða málið í heild.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert