Fengu umhverfisviðurkenningar

Þóra Ellen Þórhallsdóttir tekur við umhverfisviðurkenningunni úr hendi Svandísar Svavarsdóttur.
Þóra Ellen Þórhallsdóttir tekur við umhverfisviðurkenningunni úr hendi Svandísar Svavarsdóttur.

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra afhenti Þóru Ellen Þórhallsdóttur náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti í dag.

Við sama tækifæri fengu Farfuglaheimilin í Reykjavík afhentan Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins, og nemendur Þjórsárskóla voru útnefndir varðliðar umhverfisins.

Þetta er í annað sinn sem Náttúruverndarviðurkenning Sigríðar í Brattholti er veitt. Fram kemur á vef umhverfisráðuneytisins, að Ellen Þórhallsdóttir hafi stundað merkar rannsóknir á gróðri Íslands og miðlað þekkingu sinni, ekki bara til stúdenta, heldur til þjóðarinnar allrar með fyrirlestrum og fjölmiðlaþátttöku. Hún sé óhrædd við að koma fram með vísindaleg rök til verndar náttúru Íslands þó það hafi ekki alltaf fallið að ríkjandi skoðunum. 

Vefur umhverfisráðuneytisins


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka