Iceland Express til Boston

Newbury Street í Boston.
Newbury Street í Boston.

Flugvél frá Iceland Express lendir í Boston í fyrsta sinn síðdegis í dag. Er borgin annar áfangastaður félagsins í Bandaríkjunum en Iceland Express hefur flogið milli Keflavíkur og New York.

Flogið verður til Boston á mánudögum, þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum, alls fjórum sinnum í viku. 

Í næstu viku mun Iceland Express  hefja áætlunarflug til Chicago.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert