Íslendingar of varkárir í jarðvarmamálum

Michael Porter, prófessor við Harvard Business School stækka

Michael Porter, prófessor við Harvard Business School

Michael Porter, prófessor við Harvard Business School, sagði í Kastljósi Sjónvarpsins í kvöld, að Íslendingar væru of varkárir við að nýta þau tækifæri, sem fælust í jarðvarma og sérþekkingu þjóðarinnar nýtingu slíkrar orku. 

„Það þyrfti að ríkja meiri frumkvöðulsandi, meiri sókndirfska, meiri áhættusækni," sagði Porter í viðtali við Þóru Arnórsdóttur í Kastljósinu. Hann sagði að í stórum málum ríkti áhættufælni, allt væri þungt í vöfum og pólitískt. „Það vantar sókndirfsku til að koma málum áfram," sagði hann.

Porter var heiðursgestur á fundi, sem haldinn var í Reykjavík í dag um jarðvarma. Hann sagði í viðtalinu, að helsta forskot Íslendinga á sviði jarðvarmanýtingu væri, að þeir hefðu unnið lengi á þessu sviði og stór hluti orkuneyslu á Íslandi kæmi úr þessum orkugjafa.

Hann sagði, að  auðlindirnar sjálfar gætu verið í eigu almennings á Íslandi en mörg dæmi væru um að í heiminum, að einkafyrirtæki fengju rétt til að nýta slíkar auðlindir. Sagðist Porter vera talsmaður fjölbreyttara samstarfs þar sem bæði ríkis- og einkafélög nýttu auðlindina á grundvelli skýrra reglna. 

„Hlutirnir ganga of hægt á Íslandi um þessar mundir," sagði Porter og bætti við að hægagangurinn væri sársaukafullur og skapi hættu á að Íslendingar tapi því forskoti, sem þeir hafa í þekkingu á jarðvarmanýtingu.

„Þetta er stærsta tækifæri sem  sem hægt er að ímynda sér. Þetta er flóðbylgja tækifæra en Íslendingar eru enn að rökræða og deila og hlutirnir ganga allt of hægt," sagði hann.

Porter  sagði að jarðvarmi væri raunveruleg auðlind á Íslandi og hana væri ekki hægt að taka af Íslendingum. Enginn vafi léki á að eignarhaldið eigi að vera hjá þjóðinni. En verkefni á sviði jarðvarma gætu haft gríðarleg áhrif á íslenska hagkerfið.

„Ég held að hér ríki of mikil svartsýni. Hún er að hluta vegna viðbragða við gríðarlega niðurdrepandi niðursveiflu í efnahagslífinu sem fæstir Íslendingar bera ábyrgð á. Erlendar fjárfestingar, sem snúast um hátækni, vel launuð störf og þátttöku landsins í hagkerfi heimsins á mikilvægu sviði eru gríðarlega mikilvægar. En ég held að  þjóðin tengi með einhverjum hætti erlendar fjárfestingar við fjármálahrunið. En vandamálið var ekki að erlend fyrirtæki kæmu til Ísland og gerðu þar eitthvað af sér," sagði Porter.

Hann sagðist vilja sjá Íslendinga nýta jarðvarma sem orkugjafa til að skapa meiri verðmæti fyrir landið og einnig að selja þekkinguna.  

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Kisi er týndur
Hann er hvítur og grábröndóttur og týndist í Fossvoginum. Hann er eyrnamerktur o...
CANON EOS NÁMSKEIÐ - spennandi námskeið.
Kennum á CANON EOS vélar. Námskeið í hverjum mánuði. Í boði eru mislöng námskeið...
SPÁNN - Gullna ströndin Costa Brava
Costa Brava - Pladja de Aro er frábær sólarstranda staður. Við leigum út íbúð st...
Góður hrossaskítur í garðinn
Er á höfuðborgarsvæðinu. Þú getur sótt frítt eins og þú vilt, eða ég komið með k...
 
Starfsleyfisauglýsing
Tilkynningar
Mynd af auglýsingu ...
15269 sumarhúsverkmenntaskóli akureyrar
Til sölu
Tilboð óskast í s...
Sýslumaðurinn í hafnarfirði - framhald uppboð

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Leikskólastjóri við sunnufold
Stjórnunarstörf
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...