Aðkoman var hrikaleg

Slökkvistarfið var erfitt enda mikill eldsmatur.
Slökkvistarfið var erfitt enda mikill eldsmatur. mbl.is/Sigmundur Sigurgeirsson

Mikill eldur var í veitingasölu Eden í Hveragerði þegar slökkviliðið kom á vettvang, sagði Pétur Pétursson, varaslökkviliðsstjóri hjá Brunavörnum Árnessýslu, við vefinn sunnlenska.is, að aðkoman hafi verið mjög slæm.

„Aðkoman var hrikaleg. Það eru mjög eldfim byggingarefni í húsinu, þakefnin öll úr plasti og eldurinn var mikill í veitingahlutanum. Við byrjuðu að senda menn inn um aðalanddyrið á húsinu en þá er eldurinn orðinn það þróaður að við þurftum að bakka með þá menn strax,“ sagði Pétur við vefinn.

„Það er það mikið gas sem losnar úr þessum efnum þegar þau brenna og berast um húsið og krafturinn var slíkur að það var ekki við neitt ráðið. Eldurinn breiddist gríðarlega hratt út og ég hugsa að allir sem hafi verið hér á vettvangi hafi upplifað gríðarlegan óhugnað, slík voru hljóðin frá eldinum,“ segir Pétur.

Þegar eldfimustu efnin voru brunnin gekk slökkvistarf vel fyrir sig og Pétur segir að aðstæður á vettvangi hafi ekki getað verið betri.

„Það er blankalogn og reykurinn frá húsinu er mjög eitraður en hann steig beint upp í loftið. Geislunarhitinn var mjög mikill og við þurftum að hörfa með tvo fyrstu bílana sem hófu störf á vettvangi svo að þeir myndu ekki skemmast í hitanum.“

Pétur á von á að slökkvistarf muni standa framundir morgun en ljóst er að ekkert stendur eftir af þessum vinsæla ferðamannastað. „Við erum búnir að ná góðum tökum á þessu núna þegar eldfimustu efnin eru farin en það mun taka töluverðan tíma að slökkva í þessu,“ sagði Pétur.

Sunnlenska.is

Eden er rústir einar.
Eden er rústir einar. mbl.is/Sigmundur Sigurgeirsson
Eldurinn logaði í öllu húsinu.
Eldurinn logaði í öllu húsinu. mynd/Vilhjálmur Roe
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert