Fréttaskýring: Svöðusár í hjarta Hveragerðis

Dapurlegt er um að litast þar sem áður stóðu hýsakynni …
Dapurlegt er um að litast þar sem áður stóðu hýsakynni gamla Eden eftir að stórvirkar vinnuvélar hafa fjarlægt nær allt brak eftir brunann fyrir rúmri viku. Vonir standa til uppbyggingar á lóðinni næsta sumar.

„Það er í raun engin áætlun komin um uppbyggingu,“ segir Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði, aðspurð hvað tekur við eftir stórbrunann í Eden 22. júlí síðastliðinn. Hún segir málið enn vera í höndum tryggingafyrirtækis og að eigandi lóðarinnar hafi ekki komið fram með neina framtíðaráætlun fyrir svæðið að svo stöddu.

Ekki verður byggt í sumar

Unnið hefur verið að niðurrifi gamla Eden að undanförnu með stórvirkum vinnuvélum og er sú framkvæmd langt á veg komin. Segir Aldís það alveg ljóst að ekkert verði byggt á lóðinni í sumar.

Eden stóð í miðbæ Hveragerðis og því ljóst að um er að ræða svöðusár í blómhnappi bæjarins. „Draumurinn er að eitthvað verði komið þarna næsta sumar,“ segir Aldís og bætir við að ekki liggi fyrir hverskonar rekstur taki við á lóðinni. „Bærinn getur auðvitað ekki farið og gripið fram fyrir hendurnar á þeim sem þarna eiga lóðaréttindi og voru með rekstur.“ Að sögn vonast hún til að uppbygging geti hafist sem fyrst.

Um fullnustueign að ræða

Eigandi lóðarinnar er Sparisjóður Vestmannaeyja, sem einnig rekur útibú á Suðurlandi. „Staðan er bara sú að við sem eigendur að þessu tjóni í sjálfu sér, erum að hefja viðræður við okkar tryggingafélag um þessa stöðu sem upp er komin,“ segir Ólafur Elísson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Vestmannaeyja.

Hann segir sparisjóðinn hafa verið í ágætum samskiptum við bæjarskrifstofu Hveragerðis varðandi stöðu mála og segir hann framvindu máls verða áfram unna í góðri sátt.

„Lóðin og þessi eign er tilkomin í grunninn sem fullnustueign,“ segir Ólafur og bendir á að eignirnar hafi verið til sölu í talsverðan tíma og ekki hafi staðið til að sparisjóðurinn yrði framtíðareigandi að þeim. Á meðan eignin var til sölu var hún jafnframt til útleigu hjá rekstraraðilum sem önnuðust rekstur á eigin vegum. „Í sjálfu sér hefur þessi grundvallarmynd ekkert breyst. Þessi verðmæti eru til sölu.“ Hann segir ljóst að uppbygging gæti tekið á sig breytta mynd frá fyrra húsnæði. „Við munum leita eftir aðilum til að annast þessa uppbyggingu.“

Að sögn mun sparisjóðurinn ekki fara einn og sér í uppbyggingu og rekstur á svæðinu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert