Misstu af 1,5 milljörðum

Sjóvá.
Sjóvá.

Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður segir að með því að samþykkja tilboð SF1 í Sjóvá hafi ríkið orðið af 1,5 milljörðum króna. Félagið var ófjármagnað í fyrra og hefði því ekki komist í gegnum söluferlið í upphafi þess í janúar 2010.

En þá kom fram hærra tilboð frá öðru félagi, en þar vísar Guðlaugur til tilboðs kaupendahóps sem Heiðar Guðjónsson var í forsvari fyrir.

Guðlaugur Þór bendir á að SF1 hafi keypt 52,4% hlutafjár í Sjóvá á 4,9 milljarða króna. Það þýði að heildarverð félagsins sé ríflega 9,4 milljarðar. „Í nóvember á síðasta ári lá fyrir tilboð frá fyrirtæki sem var ekki þóknanlegt seðlabankastjóra upp á 10,9 milljarða,“ segir hann. „Skattgreiðendur þurfa að greiða mismuninn,“ segir Guðlaugur Þór í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Guðlaugur hefur óskað eftir fundi í viðskiptanefnd Alþingis til að ræða málið. Í Morgunblaðinu í dag segist Álfheiður Ingadóttir, formaður nefndarinnar, enga þörf á því.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert