Stendur við fyrri ummæli

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. mbl.is

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, stendur fastur á fyrri ummælum sínum þess efnis að ræddar hafi verið skattahækkanir á matvælum innan herbúða ríkisstjórnarinnar.

Aðspurður hver heimildarmaður hans sé segist Sigmundur Davíð ekki treysta sér til að gefa það upp.

„Ég lofaði því að segja ekki frá því. Sá sem að sagði hvernig þetta stæði og hvað hafi verið rætt er í þeirri aðstöðu að hann átti ekki að vera að tjá sig um það út á við.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka