Lúðvík tekur sæti á Alþingi

Lúðvík Geirsson.
Lúðvík Geirsson.

Lúðvík Geirsson, fyrrv. bæjarstjóri í Hafnarfirði, tók sæti sem aðalmaður fyrir Samfylkinguna á Alþingi við upphaf þingfundar í morgun.

Lúðvík tekur sæti Þórunnar Sveinbjarnardóttur sem sagði af sér þingmennsku síðastliðinn föstudag. Lúðvík hefur áður komið inn á þing sem fyrsti varaþingmaður Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi.

Forseti Alþingis las við upphaf þingfundar upp bréf Þórunnar Sveinbjarnardóttur þar sem hún afsalaði sér þingmennsku.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert