Tjaldbúar á Austurvelli

Mótmælin hafa farið friðsamlega fram.
Mótmælin hafa farið friðsamlega fram. mbl.is/Golli

Búið er að setja upp tjald á Austurvelli, en þar hafa um 20 mótmælendur komið sér fyrir í kvöld. Mótmælendurnir kenna sig við Occupy Reykjavík, en þeir eru hluti af mótmælahreyfingu sem hófst við Wall Street í New York í síðasta mánuði og hefur síðan breiðst út víða um heim.

Mótmælendur hafa stillt sér upp undir borða sem á stendur „Alvöru lýðræði“. Til mótmælanna var boðað á Fésbók, en þar segir að þau muni standa frá kl. 18-22. Í hópnum eru bæði Íslendingar og útlendingar.

Mótmælendur á Wall Street hafa sagt að þeir séu fulltrúar 99% þjóðarinnar og þeir séu að mótmæla græðgi og ábyrgðarleysi sem fulltrúar 1% þjóðarinnar hafa staðið fyrir í fjármálalífinu. Mótmælin hafa breiðst út til fleiri borga í Bandaríkjunum og til fleiri landa.

Mótmælendur leggja áherslu á að þeir séu fulltruar 99% þjóðarinnar.
Mótmælendur leggja áherslu á að þeir séu fulltruar 99% þjóðarinnar. mbl.is/Golli
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert