3 ferðir í Landeyjahöfn á morgun

Herjólfur í Landeyjahöfn.
Herjólfur í Landeyjahöfn. mbl.is/GSH

Gert er ráð fyrir því að Herjóflur sigli þrjár ferðir milli Eyja og Landeyjahafnar á morgun. Verður farið frá Eyjum klukkan 8, 11.30 og 15.30 og frá Landeyjahöfn klukkan 10, 13 og 19.

Eimskip, sem gerir Herjólf út, segir að aðstæður geti þó breyst hratt. Þá er farþegum bent á að hálka sé á vegum, hvort sem um er að ræða akstur um Suðurlandsundirlendið og Hellisheiði eða Þrengslin. Er fólk því hvatt til að gefa sér góðan tíma í akstur til og frá viðkomustöðum Herjólfs.

Ölduspá fyrir Landeyjahöfn er með þeim hætti, að sögn Eimskips, að verulegar líkur séu á því að Herjólfur sigli til Þorlákshafnar þann tíma. Tillkynning um það verður send út um leið og ákvörðun liggur fyrir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert