Segja úrskurðinn áfangasigur fyrir neytendur

Hagsmunasamtök heimilanna fagna því að Samkeppniseftirlitið hafi tekið tillit til heildarhagsmuna neytenda í ákvörðun um undanþágubeiðni Samtaka fjármálafyrirtækja vegna dóms hæstaréttar. Þar með sé komið að hluta til móts við þau sjónarmið sem samtökin settu fram í umsögnum sínum. Samtökin ítreka að ýtrasti réttur neytenda skuli virtur í hvívetna og neytendur njóti ávallt vafans eins og lög gera ráð fyrir.

Hagsmunasamtökin segja að neytendur og lántakendur hafi unnið áfangasigur með ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um undanþágubeiðni Samtaka Fjármálafyrirtækja vegna fyrirhugaðs samráðs um viðbrögð við dómi hæstaréttar í máli þar sem afturvirk endurákvörðun og innheimta seðlabankavaxta af áður gengistryggðu láni var dæmd ólögmæt. Í innsendum umsögnum Hagsmunasamtaka heimilanna vegna málsins var mælt gegn því að beiðnin yrði samþykkt og gerð athugasemd við að ekki væri gert ráð fyrir þeim aðilum og stofnunum sem eiga að gæta hagsmuna neytenda.

Samkeppniseftirlitið hefur nú hafnað undanþágubeiðni SFF, en fallist á að fjármálafyrirtæki sem í hlut eiga hafi samráð um þröngt afmörkuð verkefni er lúta að viðbrögðum við áðurnefndum dómi og höfðun frekari dómsmála um úrlausnarefni sem enn standa óleyst. Þess er krafist að haldnar séu skýrar fundargerðir slíkra samráðsfunda að viðstöddum fulltrúa Umboðsmanns skuldara auk Neytendastofu og Talsmanns Neytenda óski þau eftir því.

Hagsmunasamtökin vekja athygli á því að lánveitendum sem aðild eiga að samstarfinu er gert að fresta öllum fullnustuaðgerðum vegna lána sem ljóst er að falli undir dóm Hæstaréttar. Hagsmunasamtök heimilanna telja það líklega geta átt við um flest áður gengistryggð lán, en vísa að öðru leyti til dómsorða Hæstaréttar. Þá er sett sem skilyrði fyrir samráði að fjármálafyrirtækin krefjist ekki málskostnaðar og skuli í dómsmálum sem höfðuð verði í kjölfarið leitast eftir málum þar sem skuldarar eru að mati umboðsmanns skuldara hvað best til þess fallnir að halda uppi vörnum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert