Þrír ultu á Holtavörðuheiðinni

Jeppabifreið valt á Holtavörðuheiði skömmu fyrir klukkan níu í kvöld. Fjórir voru í bílnum og hlutu tveir þeirra minniháttar meiðsli í hálsi og baki og voru fluttir á sjúkrahús til skoðunar.

Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi valt bíllinn eina veltu og hafnaði utan vegar. Hann er mikið skemmdur. Afar hált og mikil ísing er á þessum slóðum og ultu tveir fólksbílar þar á svipuðum tíma.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert