Kona stungin með hníf

mbl.is/Hjörtur

Kona var stungin með hníf í Kópavogi í nótt. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um hnífstunguna skömmu fyrir klukkan fimm í nótt.

Var konan flutt á slysadeild og árásarmaðurinn handtekinn. Hann er nú vistaður í fangaklefa lögreglunnar en málið er í rannsókn lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert