Hollywood-stjörnurnar koma hver á fætur annarri

Ben Stiller kemur hingað til lands og leikur í The …
Ben Stiller kemur hingað til lands og leikur í The Secret Life of Walter Mitty. mbl.is/reuters

Truenorth ehf. kemur að tökum á þremur stórum kvikmyndaverkefnum hér á landi í sumar. Nýlega var greint frá því nýjasta, Noah eða Nóa, með Hollywood-leikaranum Russel Crowe í aðalhlutverki.

Auk Nóa kemur Truenorth að tökum á fleiri kvikmyndum þar sem þekktar Hollywood-stjörnur verða í aðalhlutverkum. Þar má nefna myndirnar Oblivion með Tom Cruise og The Secret Life of Walter Mittymeð Ben Stiller.

Í umfjöllun um þessi mál í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að Truenorth lagði fram beiðni til Rangárþings ytra um að fá að kvikmynda nálægt Veiðivötnum í sumar. Hreppsráð Rangárþings ytra tók erindið fyrir í gær og samþykkti það með skilyrðum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert