Tvö hafa boðið sig fram til víglusbiskups

Hólar í Hjaltadal.
Hólar í Hjaltadal. mbl.is/RAX

Framboðsfrestur til kjörs vígslubiskups að Hólum í Hjaltadal rann út í dag og hafa tvö boðið sig fram. Það eru þau sr. Kristján Björnsson sóknarprestur í Vestmannaeyjaprestakalli og sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir sóknarprestur á Möðruvöllum í Hörgárdal.

Enn er þó möguleiki á að tilkynning um framboð sé í pósti og því ekki ljóst fyrr en síðar í vikunni hversu margir gefa endanlega formlega kost á sér, segir í tilkynningu frá Biskupsstofu.

Solveig Lára Guðmundsdóttir.
Solveig Lára Guðmundsdóttir.
Kristján Björnsson.
Kristján Björnsson.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert