Þorgerður Ingólfsdóttir borgarlistamaður Reykjavíkur

Jón Gnarr borgarstjóri afhentir Þorgerði Ingólfsdóttur, borgarlistamanni, ágrafinn stein og …
Jón Gnarr borgarstjóri afhentir Þorgerði Ingólfsdóttur, borgarlistamanni, ágrafinn stein og heiðursskjal. mbl.is/Ómar

Þorgerður Ingólfsdóttir kórstjóri var í dag útnefnd borgarlistamaður Reykjavíkur árið 2012. Útnefningin fór fram í Höfða þar sem Jón Gnarr borgarstjóri veitti listamanninum af þessu tilefni ágrafinn stein, heiðursskjal og viðurkenningarfé. Menningar- og ferðamálaráð útnefnir árlega borgarlistamann og gerði Magnús Þór Gylfason grein fyrir vali ráðsins. Í lok athafnar söng Hamrahlíðarkórinn undir stjórn Þorgerðar í Höfða.

Reykjavíkurborg heiðrar nú Þorgerði fyrir ómetanlegt frumkvöðlastarf í tónlist og menningaruppeldi. Þorgerður stofnaði Kór Menntaskólans við Hamrahlíð árið 1967 og árið 1982 framhaldskór hans, Hamrahlíðarkórinn. Undir forystu Þorgerðar hafa kórarnir tveir unnið hvern sigurinn af öðrum hvort sem er á tónleikum innanlands eða á alþjóðlegum tónlistarhátíðum víða um heim. Á þriðja þúsund ungmenna hafa hlotið tónlistaruppeldi í Hamrahlíðarkórunum hjá Þorgerði, meðal þeirra eru margir af fremstu tónlistarmönnum þjóðarinnar, segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Hamrahlíðarkórarnir hafa verið mjög virkir í íslensku samfélagi, haldið fjöldann allan af tónleikum um allt land við mjög fjölbreytta viðburði. Þeir hafa undir stjórn Þorgerðar haldið tónleika í 23 löndum, komið fram á mörgum helstu kórahátíðum heims í  Evrópu, Norður-Ameríku og Asíu og hlotið margvísleg verðlaun. Fjölmörg tónskáld, íslensk og erlend, hafa samið verk fyrir Þorgerði og kórana hennar auk allra þeirra raddsetninga, ljóðaþýðinga og söngtexta sem samin hafa verið fyrir kórana. Hamrahlíðarkórarnir undir stjórn Þorgerðar hafa gert ótalmargar upptökur fyrir útvarp og sjónvarp innan lands sem utan og þrjár hljómplötur og átta geisladiskar hafa komið út með söng kóranna, hlotið viðurkenningar og lofsamlega dóma. Á þessu ári kemur út nýr geisladiskur með verkum Huga Guðmundssonar í flutningi Hamrahlíðarkórsins.

Stundað tónlistarnám frá sjö ára aldri

Þorgerður stundaði alhliða tónlistarnám frá sjö ára aldri. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1963, tónmenntakennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík 1965 og nam í kjölfarið tónvísindi og kórstjórn á meistarastigi við University of Illinois í Bandaríkjunum.

Formlegt tónlistarnám hefur hún einnig stundað í Austurríki og Bretlandi og nam að auki guðfræði um  tíma við Háskóla Íslands.  Auk þess að stjórna Hamrahlíðakórunum kenndi Þorgerður við Tónlistarskólann í Reykjavík í tæp þrjátíu ár. Hún sá um kynningar á fjölskyldu- og skólatónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í sjö ár og var framkvæmdastjóri Zukofsky-tónlistarnámskeiðanna fyrstu árin.

Hún var fulltrúi tónlistarmanna í stjórn Bandalags íslenskra listamanna í mörg ár og fulltrúi Íslands á sviði tónlistar í Kaleidoscope-verkefni Evrópusambandsins, í Sleipni og í norrænu tónlistarnefndinni, NOMUS. Þorgerður hefur tekið mjög virkan þátt í alþjóðlegu samstarfi á sviði tónlistar og m.a. setið í dómnefndum í ýmsum alþjóðlegum tónlistarkeppnum. Hún er einn af stofnendum Alþjóðlega kórasambandsins og á sæti í ráðgjafarnefnd Heimsleikanna í kórtónlist.

Þorgerður var aðalstjórnandi æskukórsins Radda Evrópu sem var viðamesta samstarfsverkefni menningarborga Evrópu árið 2000, þar sem menningarborgirnar níu lögðu til kór og söngvara frá hverri borg sem sameinuðust í Raddir Evrópu og héldu tónleika um Evrópu þvera og endilanga. Þorgerður stjórnaði jafnframt Röddum Íslands, kór 150 ungra kórsöngvara af öllu landinu, sem komu fram á opnunarhátíð Hörpu 13. maí á liðnu ári.

Þorgerður hefur hlotið margvíslega viðurkenningu fyrir störf sín og list, s.s. Bjartsýnisverðlaun Bröstes, menningarverðlaun DV, heiðursverðlaun Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins, riddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu og stórriddarakross Hinnar konunglegu norsku heiðursorðu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert