Boðar aukna fjárfestingu 2013

Unnið að byggingu álvers Norðuráls í Helguvík.
Unnið að byggingu álvers Norðuráls í Helguvík. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

„Við siglum núna að landsmeðaltalinu fyrir atvinnuvegafjárfestingu á árunum 1990 til 2012. Við náum því á næsta ári og förum jafnvel aðeins upp fyrir það ... En við erum á réttri leið í þessum efnum og það ber að viðurkenna,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra á aðalfundi LÍÚ í Reykjavík í gær. 

„Því það hjálpar okkur ekkert að gráta okkur í sæng á hverju kvöldi og láta ekki einu sinni eftir okkur að gleðjast þó yfir því sem þróast í rétta átt,“ sagði Steingrímur en fjárfesting hefur sem kunnugt er verið lítil í sögulegu samhengi frá efnahagshruninu.

Hann vék svo að samspili veiks gengis og sterkrar stöðu útflutningsgreina.

„Almennt hefur afurðaverð verið hátt og auðvitað hefur veik krónan leitt til góðrar afkomu í útflutnings- og samkeppnisgreinum og það hefur skipt sköpum fyrir Ísland við að hafa sig út úr þessu. Varðandi uppsjávarfiskstofna að þá eru þeir svona í meðaltali í góðu standi. Því miður eru þar blikur á lofti.“

Steingrímur J. Sigfússon
Steingrímur J. Sigfússon Ernir Eyjólfsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert