Þrjár konur keppa um 2. sætið

Steingrímur J. Sigfússon stefnir einn á 1. sæti listans.
Steingrímur J. Sigfússon stefnir einn á 1. sæti listans. mbl.is/Ernir Eyjólfsson

Níu frambjóðendur hafa lýst þátttöku í forvali VG í Norðausturkjördæmi. Steingrímur J. Sigfússon býður sig einn fram í fyrsta sætið en þrjár konur stefna á annað sætið.

Frambjóðendur í forvalinu eru í stafrófsröð: 

Ásta Svavarsdóttir  - 3. – 4. sæti

Bjarkey Gunnarsdóttir – 2. sæti

Bjarni Þóroddsson – 3.-6.  sæti

Björn Halldórsson – 3. sæti

Edward H Huijbens -  3. sæti

Ingibjörg Þórðardóttir – 2. sæti

Sóley Björk Stefánsdóttir – 2. sæti

Steingrímur J Sigfússon – 1. sæti

Þorsteinn Bergsson 3. sæti

Efnt verður til póstkosningar um 6 efstu sæti framboðslista VG í Norðausturkjördæmi. Frestur til að greiða atkvæði verður til 10. desember. Síðasti dagur til að skrá sig í flokkinn til að hafa atkvæðisrétt er 30. nóvember.

VG fékk þrjá menn kjörna í NA-kjördæmi í síðustu kosningum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert